Færsluflokkur: Bloggar

Peter Graves allur

Stórkostlegur leikari fallinn frá. Eftir situr urmull af frábærum myndum, en hann lék stórt hlutverk í einni af mínum uppáhaldsmyndum, Stalag 17, árið 1953. Skömmu síðar lék hann ásamt Robert Mitchum í klassíkinni Night of the Hunter og tugum bíómynda og sjónvarpsþátta síðar fór hann með hlutverk flugstjórans Oveur í Airplane 1 og 2.

Samt er rulla hans í Mission:Impossible-þáttunum líklega það hlutverk sem flestir minnast hans fyrir. Ætli það sé ekki bæði ljúft og skylt að skella disk í tækið í kvöld...


mbl.is Leikarinn Peter Graves látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni vann!

Bjarni vann þetta - spurt var um eðalmennið og heimsborgarann Ernst Stavro Blofeld, sem kom fyrst fram í sögunni Thunderball. Hann er hugarsmíð Ian Fleming og Kevin McClory.

Hann, skv. bókinni, fæddist í Þýskalandi árið 1908 og foreldrar hans voru pólsk og grísk. Nokkrir leikarar hafa leikið hann í Bond-myndunum, síðast Max Von Sydow í Never say never again. Rétt nafn leikarans er Max Karl Adolf Von Sydow.

Bjarni hefur með þessu unnið sér inn lítið notaðan banana og nýétna smáköku.

 


Vísbending

Ekki gengur rassgat með getraunina, svo hér eru vísbendingar.

Persónan er karlkyns.

Persónan hefur verið leikin af í það minnsta sex leikurum í enn fleiri myndum. Sá sem síðast fór með hlutverkið er Evrópumaður að nafni Adolf.

Persónan hefur notað nokkur dulnefni gegnum tíðina.

Hver er?


Klikk í reikningi...

Í fréttinni segir:

"15 feta fjarlægð, sem samsvarar um 14 km".

Ég leyfi mér að fullyrða að það sé ekki sannleikanum samkvæmt.


mbl.is Neitar að flytja út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Djetraun.

Ein létt. Ekki beint bíógetraun, en samt. Svona óbeint.

Spurt er um skáldsagnapersónu.

Persónan kemur fyrir í nokkrum bókum. Í einni þeirra kemur fram að persónan fæddist á fyrsta áratug síðustu aldar og væri því rétt rúmlega hundrað ára ef hún væri til í alvörunni. Foreldrarnir voru ættuð frá Póllandi og Grikklandi.

Persónan vann fyrir nasista í seinna stríði.

Persónan gengur í einhverjum sögum undir dulnefni. Það dulnefni er sótt í gamlar kúrekasögur.

Hjúskaparstaða aðilans er óljós, þó svo virðist sem persónan hafi átt í ek. sambandi við aðstoðaraðila sinn. Reyndar er margt við karakterinn sem er óljóst.

Í eitt skiptið myrti persónan samstarfsmann sinn með því að skjóta hann með loftbyssu sem hlaðin var með nál. Var það fæstum harmdauði.

Persónan var sköpuð af tveimur mönnum. Annar þeirra var Íri og lést fyrir fáum árum. Höfundarnir tveir urðu verulega ósáttir og varð það til þess að Írinn kærði hinn höfundinn og fór með sigur.

Þetta á að vera skítlétt - hver er persónan?


Eitt það erfiðasta sem ég hef gert...

...var að reyna að lesa þetta allt til enda án þess að geyspa. Það tókst ekki.
mbl.is Tilmælum Fjármálaeftirlits ekki breytt eftir fund með Baugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef kosningin er marklaus...

... á stjórnin að sjálfsögðu að fella lögin úr gildi. Verði það gert verður kosningin óþörf. En það hefur einhverra hluta vegna ekki verið gert ennþá.

Því er um að gera að mæta á morgun og segja nei. Allir með?


mbl.is Jóhanna ætlar ekki á kjörstað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikaragetraun!

Nú skal spurt um leikara.

Hann er látinn.

Hann gifti sig í það minnsta fimm sinnum.

Hann lék í mörgum frægum stríðsmyndum.

Hann eyddi dálitlum tíma sem gestur í þrælkunarbúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni.

Jæja - hver var?


Pælipæl.

Nú fyrir skemmstu var ríkið sýknað af kröfum Impreglio, en þeir kröfðust þess að fá vel á annan milljarð frá íslenska ríkinu. Samkvæmt dómi þarf ríkið ekki að greiða þeim eina krónu.

Sumir þingmenn voru mjög óhressir með það á sínum tíma að ríkið greiddi ekki upphæðina í hvelli þegar krafan var gerð. Einn þingmaður sagði í ræðu á þingi að ríkið ætti að greiða þetta í hvelli í stað þess að þurfa þegar þar að kæmi að greiða milljón á dag í dráttarvexti. Sá er nú fjármálaráðherra og talar um hrikalegar afleiðingar þess að við borgum ekki Icesave. Í hvelli.

En Impreglio skíttapaði semsagt málinu og fékk ekki krónu, þrátt fyrir að fjármálaráðherra vildi borga.

Ég var bara að pæla...


Þetta var sko aldeilis ekki...

...sú Osbourne-ætt sem mér datt fyrst í hug þegar ég sá fyrirsögnina.
mbl.is Bróðir Osborne falsaði lyfseðil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband