31.10.2008 | 18:42
Sitthvað
Fyrst - þetta:
http://faroe.auglysing.is/#
Skrifið undir.
Annað - þetta:
http://visir.is/article/20081031/FRETTIR01/632052093/-1
Fíbbl og fávitar. Nú vilja sumir lögbinda hlutfall kvenna í ákveðnum fyrirtækjum, svo konur verði í það innsta ákveðin prósenta starfsmanna. Hvað varð um að ráða þann hæfasta sem sækir um? Þetta verður pottþétt til þess að enginn nema enginn tekur konur í þessum stöðum alvarlega. Þær verða jú að öllum líkindum þarna, allavega í hugum margra, bara til að fylla upp í kvóta.
Svona bull er líka lítilsvirðing við konur sem slíkar - er verið að segja að konur geti ekki fengið vinnu út á eigin hæfileika?
Vonandi verður þetta frumvarp ekki samþykkt, enda er það flutningsmönnum sínum til minnkunar að mínu mati. Eru ekki einhver merkilegri mál í gangi sem þingmenn ættu að eyða kröftum sínum í, eins og t.d. efnahagskreppan?
Annars er ég hress, bara strákar í húsinu núna. Kerlingin úti og við feðgarnir mínus Elsti-Sveppur að horfa á fréttir. Miðju-Sveppur heldur með Obama og vonar að hann verði næsti forseti BNA. Er hinsvegar að íhuga að skipta um skoðun eftir að Arnold Svartsnægger, a.k.a. Frosti, sagðist styðja "gamla kallinn". Ekki það að álit hans skipti máli, enda er hann bara fimm ára í allt öðru landi...
Nú er frétt um að einhver hafi hengt brúðu í líki Obama upp í tré, líkt og hann hafi verið hengdur án dóms og laga, við skóla í BNA. Einn kennari tjáir sig um málið og segir þetta verulega ósmekklegt og á vart orð af hneykslan. Nafnið hans fannst mér samt fyndið í ljósi atburðanna - hann heitir Mike Lynch.
Athugasemdir
Já og brúðan af B. Hussein Obama var tekin strax niður, samt á að finna hverjir gerðu þetta og refsa þeim. en brúða af Palin hangir ennþá það er ok, hún er nú líka hvít !!!!
Vidar Valgeirsson (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 10:00
Ég held það sé frekar af því hún er Repúblíkani... eða af því hún er kerling.
Ingvar Valgeirsson, 1.11.2008 kl. 11:47
Mér finnst þessi síða hjá þér vera mjög óáhugaverð, farðu nú að skrifa um eitthvað áhugavert, t.d. um mig.
Tryggvi Vilmundarson (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 14:20
Hvort heldur sem er hvað veldur hengdum brúðum og hví þær hanga mismunandi lengi, þá er maðurinn dökki á hörund jafn hvítur að upplagi og uppeldi hans er "hvítara en hvítt"!
Magnús Geir Guðmundsson, 2.11.2008 kl. 03:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.