Listi Sveins

Var beðinn um að fylla út lista. Gaman að því.

1.ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ?

Frænda mínum, sem hét víst Árni. Í fúlustu alvöru.

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ?

Er ekki alveg viss - það er ekkert svo langt síðan samt.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ?
Ómótstæðilega.

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ?
Þrjá sveppi.

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ?
Annaðhvort væri ég besti vinur minn eða ég væri búinn að berja mig. Er ekki viss.

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ?

Já, það held ég.

8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ?

Hef oft farið og þeir sem gera það ekki eru allir aumingjar! Eða ekki.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?

Hamborgari með sósu og frönskum á milli. Eða múslí.

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ?

Nei - það eru engar reimar á skónum mínum.

11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKAN ?

Bæði og.

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ?

Vanilluís, gott að hellda kóki yfir. Ekki hollt, en gott.

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ?

Veit ekki.

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ?

Ég nota aðallega grænan,

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ?

Mér finnst ég frábær. Ég er samt bévítans leiðindapúki og fíbbl stundum.

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ?

Konunnar minnar. Hún ætlaði að vera komin með matinn.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ?

Nei, nei. Væri samt ekkert leiðinlegt að sjá suma... eða eitthvað.

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ?

Er í bleikum slopp og á sokkunum.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ?

NAutasteik síðan í gær og ristað franskbrauð.

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?

Whitesnake.

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ?

Kamóflas.

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ?

Ilmurinn í eldhúsinu er svo lokkandi.

23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ?

Bróður minn held ég. Hann er kommúnisti.

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR?

Já, já. Hann mætti samt fara að skila mér James Bnd-myndinni sem ég lánaði honum.

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ?

Hundrað metra grindarskekkja á Ópíumleikunum hressir alltaf.

26. ÞINN HÁRALITUR ?

Ákaflega dökkur. Ég er víst með þetta þreytta og suðræna útlit.

27. AUGNLITUR ÞINN ?

Blár.

28. NOTARÐU LINSUR ?

Nei, sé alveg ágætlega, þakka þér.

29. UPPÁHALDSMATUR ?

Góður matur. Ekki hrifinn af vondum mat.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?

Vondur endir er oft góður endir.

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ?

Indiana Jones. Hann vann.

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ?

Það fer eftir hvað hún er að knúsa og kyssa...

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ?

Yfirleitt meira af aðalréttinum ef hann er góður. Tíramísú er líka hressandi... nú eða æriskoffí og svo annar.

34. HVER ER LÍKLEGASTUR TIL AÐ SVARA ÞESSU OG BIRTA ?

Veit ekki, einhver sem hefur jafnlítið að gera og ég!

35. HVER ER ÓLÍKLEGASTUR ?

Einhver sem er í vinnu.

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ?

Æi, þarna eftir Arnald þar sem kellingin hengir sig í sumarbústað.

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ?

Engin mynd á Macbook...

38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ?

Ekkert, held ég.

39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?

Bítlarnir. Eins og einhver sagði - þegar er talað um Bítlana er bara talað um Bítlana. Þegar talað er um Stones er alltaf talað um Stones og Bítlana.

40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ?

Westurströnd Bandaríkjanna.

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ?

Ég er skemmtilegur oftar en ég er leiðinlegur, held ég...

42. HVAR FÆDDISTU ?

Akureyri.

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ?

Jimi Hendrix. Það væri æði ef hann væri á lífi, þó aðallega fyrir hann og hans nánustu.

Jamm, þá er það frá. Whitesnake annað kvöld. Ver þar ellegar ver torg.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband