Vísirinn

Ég sá fyrirsögn á vísi punkti is um að fyrrum Bond-stúlka hefði verið myrt. Sjá frétt hér.

Málið er jú hið sorglegasta, eins og ávallt þegar svona glæpir eiga sér stað. En hinsvegar er stúlkan á myndinni alls ekki þessi Cowley sem var myrt. Sú sem er á myndinni er Tanya Roberts, sem af óskiljanlegum ástæðum fór með aðalkvenhlutverkið í View To A Kill. Hræðileg leikkona.

Hver þessi Celine Cowley var hef ég ekki grænan grun um. Veit þó ýmislegt um Bond-myndir. Grunar að hún sé "kona númer fjögur" í hópsenu, hafi hún á annað borð verið í myndinni.

Að öðru: 

Rétti upp hönd sá sem vorkennir kallinum sem segir að Kompás hafi valdið sér ómælanlegum fjárhagslegum skaða...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband